Stafrænar áherslur í menntun og þjálfun

Umsóknarfrestur til og með 10. maí 2024

Heiti viðburðar: Key enablers of a transforming digital education ecosystem

Fyrir: Aðila sem starfa við menntun og þjálfun (leik-, grunn- og framhaldsskólar; starfsmenntun; háskólar; fullorðinsfræðsla) og vilja auka skilning sinn á stafrænum áherslum innan Erasmus+

Tungumál: Enska

Hvar: Ríga, Lettlandi

Hvenær: 25.-27. september 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 10. maí 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið viðburðarins er að auka skilning þátttakenda á Erasmus+ áhersluatriðinu „stafrænar áherslur“ og auka getu þátttakendanna að setja á laggirnar Erasmus+ verkefni sem eru með stafrænar áherslur í fyrirrúmi.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica