Norræn ráðstefna um ábyrga alþjóðavæðingu á háskólastigi

Umsóknarfrestur til og með 16. janúar 2026

Heiti viðburðar: Nordic TCA on Responsible Internationalization

Fyrir: Alþjóðafulltrúa og starfsmenn háskóla sem vinna með stúdenta- og starfsmannaskipti (KA131 og KA171) og/eða samstarfssamninga (e. inter-institutional agreements). Aðrir starfsmenn háskóla sem vinna á svipuðu sviði mega einnig sækja um.

Tungumál: Enska

Hvar: Helsinki, Finnlandi

Hvenær: 25.-27. mars 2026

Umsóknarfrestur: Til og með 16. janúar 2026

Sótt er um á heimasíðu Salto

Nánari upplýsingar um þema og markmið má finna á heimasíðu Salto

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 10

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan námskeiðinu stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Sólveig Sigurðardóttir: solveig@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica