Inngilding og fjölbreytileiki í nám og þjálfun innan Erasmus+

Umsóknarfrestur til og með 31. maí 2024

Heiti viðburðar: Inclusion tool for better inclusion and diversity approach

Fyrir: KA1 umsækjendur og styrkþega í fullorðinsfræðslu, starfsmenntun eða leik,-grunn- og framhaldsskólum

Tungumál: Enska

Hvar: Bratislava, Slóvakíu

Hvenær: 13.-15. nóvember 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 31. maí 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið vinnustofunnar er að veita umsækjendum aðstoð með að undirbúa verkefnin sín betur með inngildingu og fjölbreytileika í huga. Þátttakendur verða kynntir fyrir tólum til að meta inngildingu og aðferðum til að auka inngildingu og fjölbreytileika í Erasmus+ verkefnum.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica