Málstofa um græn Erasmus+ verkefni

 Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: Green practices in Erasmus+ projects

Fyrir: Umsækjendur og styrkþega samstarfsverkefna innan starfsmenntunar- og/eða leik-, grunn- og framhaldsskólahluta Erasmus+. Umsækjendur þurfa að: a) vera með í gangi samstarfsverkefni með grænum áherslum; b) vera að undirbúa umsókn um samstarfsverkefni með grænum áherslum eða; c) hafa reynslu af Erasmus+ verkefni með grænum áherslum.

Tungumál: Enska

Hvar: Bratislava, Slóvakíu

Hvenær: 10.-12. apríl 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 15. febrúar 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Þema viðburðarins er sjálfbærni og grænar áherslur innan Erasmus+ samstarfsverkefna. Þátttakendur fá meðal annars tækifæri til að skiptast á hugmyndum, sem og að efla tengslanet sitt.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica