Erasmus+ vinnustofa um menntun til sjálfbærni, haldin í Jyväskylä, Finnlandi 1.-4. október 2023

Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: Teaching sustainability competences for hope, well-being and systemic understanding

Fyrir: Skólastjórnendur og grunnskólakennara yngri nemenda (6-12 ára)

Tungumál: Enska

Hvar: Jyväskylä, Finnlandi

Hvenær: 1.-4. október 2023

Umsóknarfrestur: 30. júní 2023. Athugið að umsóknarfresturinn fyrir þátttakendur frá Íslandi er annar en kemur fram á heimasíðu Salto.

Sótt er um á heimasíðu Salto

Þema vinnustofunnar er menntun til sjálfbærni innan grunnskólanna og er markmiðið að þátttakendur öðlist kunnáttu til að valdefla unga nemendur og auka hæfni þeirra í sjálfbærni. Þátttakendur fá einnig tækifæri til að efla tengslanet sitt.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 1

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica