Erasmus+ tengslaráðstefna um starfsmenntun og inngildingu nemenda með færri tækifæri

Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: Contact seminar: Inclusion in Erasmus+ Mobility for VET schools targeting learners with fewer opportunities

Fyrir: Fulltrúa stofnana sem bjóða uppá starfsmenntun fyrir nemendur með færri tækifæri

Tungumál: Enska

Hvar: Kaupmannahöfn, Danmörku

Hvenær: 27.-30. maí 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 15. mars 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið tengslaráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir tengslamyndun á meðal stofnana sem bjóða upp á starfsmenntun fyrir nemendur með færri tækifæri.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica