Erasmus+ tengslaráðstefna um nám/þjálfun í skólum og stofnunum

Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: New Contact Seminar Long-term learning mobility of school pupils

Fyrir: Kennara og yfirkennara sem hafa áhuga á lengri náms- og þjálfunardvölum í skólum og stofnunum (e. long-term learning mobility of pupils)

Tungumál: Enska

Hvar: Madríd, Spáni

Hvenær: 3.-5. júní 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 24. mars 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið ráðstefnunnar er að skoða hvernig hægt er að bregðast við þeim áskorunum sem skólar standa frammi fyrir við skipulagningu á lengri náms- og þjálfunardvölum í skólum og stofnunum (e. long-term learning mobility of pupils).

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 3

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica