Erasmus+ tengslaráðstefna um inngildingu á háskólastigi, haldin í Berlín 8.-10. nóvember 2023

Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: Moving closer to inclusive internationalisation in Higher Education

Fyrir: Nemendur, starfsfólk háskóla og starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+

Tungumál: Enska

Hvar: Berlín, Þýskalandi

Hvenær: 8.-10. nóvember 2023

Umsóknarfrestur: 30. júní 2023. Athugið að umsóknarfresturinn fyrir þátttakendur frá Íslandi er annar en kemur fram á heimasíðu Salto. Ekki verður tekið á móti umsóknum frá Íslandi sem berast eftir 30. júní.

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið vinnustofunnar er að dýpka skilning þátttakenda á inngildingu á háskólastigi. Þátttakendur fá einnig tækifæri til að deila reynslusögum og efla tengslanet sitt.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 4 (1 háskólanemi og 3 háskólastarfsmenn)

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica