Fjölþjóðleg vinnustofa fyrir háskólanema um stefnu og lausnir í loftlagsmálum

Umsóknarfrestur til og með 13. mars 2026

 

Heiti viðburðar: The Erasmus+ Generation for the Earth

Fyrir:

· Háskólanema sem hafa nýtt sér tækifæri í Erasmus+ áætluninni.

· Forgangur er veittur fyrir nemendur sem eru í námi sem tengist umhverfis- og loftlagsmálum

· Forgangur er veittur fyrir nemendur sem taka virkan þátt í samtökum sem vinna með umhverfis- og loftlagsmál.

Tungumál: Enska

Hvar: Róm, Ítalíu

Hvenær: 16-17. apríl 2026

Umsóknarfrestur: Til og með 13. mars 2026

Sótt er um á heimasíðu Salto

Viðburðurinn mun leiða saman fulltrúa háskólanema frá þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar. Meginmarkmið vinnustofunnar er að dýpka skilning þátttakenda á umhverfismálum og loftlagsbreytingum. Viðburðurinn mun styðja við gerð stefnuyfirlýsingar þar sem hæfni, sköpunargáfa og næmi alþjóðlegra stúdenta gagnvart viðfangsefninu fær að njóta sín í takt við raunhæfar lausnir. Stefnuyfirlýsingin verður síðar kynnt á COP 31 af sendinefnd alþjóðlegra nemenda sem komu að gerð hennar. 

Nánari upplýsingar um þema og markmið má finna á heimasíðu Salto

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan vinnustofunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 100% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Sólveig Sigurðardóttir: solveig@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica