Erasmus+ skiptir sköpum í lífi evrópskra stúdenta

20.5.2019

  • ErasmusImpactStudy2019

Niðurstöður tveggja nýrra rannsókna líta dagsins ljós í dag, sem báðar sýna að Erasmus+ hjálpar nemendum að ná árangri í lífi og starfi og styður nýsköpun og jöfn tækifæri innan háskólasamfélagsins

Rannsóknirnar byggja á svörum tæplega 77 þúsund einstaklinga með og án reynslu af áætluninni - núverandi og fyrrverandi stúdenta og starfsfólks í háskólum. Annars vegar er um að ræða rannsókn á áhrifum Erasmus+ stúdenta- og starfsmannaskipta og hins vegar rannsókn á áhrifum Erasmus+ samstarfsverkefna á háskólastigi á nærumhverfið, landsvísu og Evrópu alla. Skýrslurnar má lesa í heild sinni á vef Evrópusambandsins, en helstu niðurstöðurnar eru eftirfarandi:

Erasmus+ stúdenta- og starfsmannaskipti

  • Dvöl erlendis hjálpar 70% Erasmus+ stúdenta að átta sig á hvað þau vilja starfa við í framtíðinni
  • Níu af hverjum tíu stúdentum auka færni sína við að laga sig að breyttum aðstæðum og starfa með fólki með ólíkan menningarlegan bakgrunn
  • Níu af hverjum tíu útskrifuðum háskólanemum telja að þekkingin og reynslan sem þau hlutu erlendis á vegum Erasmus+ nýtist þeim í núverandi starfi
  • 40% stúdenta sem fara í Erasmus+ starfsþjálfun er boðin staða hjá stofnuninni sem tók á móti þeim í kjölfar þjálfunarinnar
  • 43% háskólakennara tileinka sér nýjar kennsluaðferðir við að taka þátt í Erasmus+ kennslu eða starfsþjálfun
  • 80% háskólakennara telja að Erasmus+ stuðli að nýbreytni í námskrárgerð og í náms- og kennsluaðferðum í deildinni þeirra

Erasmus+samstarfsverkefni

  • 85% Erasmus+ verkefna styðja við upplýsinga- og samskiptatækni og hjálpa háskólum við að vinna í stafrænu umhverfi
  • 80% háskóla eru betur í stakk búin að takast á við þarfir vinnumarkaðarins og bjóða upp á þverfaglegt nám sem einkennist af nýsköpun og jöfnum tækifærum fyrir fjölbreyttan nemendahóp, þökk sé Erasmus+
  • Þrjú af hverjum fimm verkefnum hjálpa til við að styðja hópa með færri tækifæri í háskólasamfélaginu, og 56% háskóla telja að verkefnin styrki þá í hlutverki sínu að auka lýðræðisfærni nemenda








Þetta vefsvæði byggir á Eplica