30 ára afmælishátíð og afhending gæðaviðurkenninga Erasmus+
Erasmus+ fagnaði 30 ára afmæli árið 2017. Til að fagna tímamótunum bauð Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi til afmælishátíðar í Hörpu þann 8. nóvember 2017.
Gæðaviðurkenningar Erasmus+ voru veittar á hátíðinni í sex flokkum, það eru verkefni á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, í æskulýðsstarfi, í starfsmenntun, á háskólastigi, í fullorðinsfræðslu og eTwinning - rafrænu skólasamstarfi, og hlutu þau verðlaunagripinn Erasmusinn 2017. Dómefnd horfði til gæða, nýsköpunar, yfirfærslumöguleika, áhrifa til skemmri og lengri tíma og verkefnastjórnunar við val á verðlaunaverkefnunum. Alls voru 18 verkefni tilnefnd árið 2017.
Heiðursviðurkenningin var veitt í tilefni af 30 ára afmæli Erasmus+ í ár. Á afmælishátíðinni voru jafnframt veittar gæðaviðurkenningar Erasmus+ fyrir framúrskarandi Evrópuverkefni og hlutu sex verkefni, sem hafa verið styrkt af áætluninni, viðurkenningarnar.
Heiðursviðurkenninguna hlaut LungA – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi . LungA hefur í meira en áratug nýtt sér fjölbreytta styrki í æskulýðshluta Erasmus+ til að byggja upp fjölþjóðlega listahátíð og LungA skólann, fyrsta lýðháskóla á Íslandi. Unnið er út frá hugmyndafræðinni um styrkingu sjálfsins í gegnum listir og skapandi vinnu.
Flokkur | Skóli/stofnun | Heiti verkefnis |
Háskólastig | Listaháskóli Íslands | Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf |
Leik-, grunn og framhaldsskólastig | Skólaþjónusta Árborgar | Nám, störf og lærdómssamfélög |
Starfsnám | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins | Deilt til árangurs |
Fullorðinsfræðsla | EVRIS | Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið |
Æskulýðsstarf | Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra | Út fyrir þægindarammann |
eTwinning - rafrænt skólasamstarf | Leikskólinn Holt, Reykjanesbæ | Gegnum lýðræði til læsis |
Evrópumerkið | Borgarbókasafn | Menningarmót - Fljúgandi teppi |
Heiðursviðurkenning | LungA | Samfélagsleg sjálfbærni |
Tilnefningar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi:
Skólaþjónusta Árborgar | Nám, störf og lærdómssamfélög |
Vatnsendaskóli | Skapandi starf og gagnrýnin hugsun |
Fjölbrautaskólinn í Ármúla | Sjálfbær útikennsla |
Árskóli Skagafirði | Skóli sem lærir |
Tilnefningar í æskulýðsstarfi:
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra | Út fyrir þægindarammann |
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Evrópudraumurinn |
Ungmennaráð Árborgar | Ráðstefna ungmennaráða á Suðurlandi |
Tilnefningar í starfsnámi:
Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins | Deilt til árangurs |
Myndlistaskólinn í Reykjavík | Nýsköpun í efnum og aðferðum og tengsl við menntakerfið í Evrópu |
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Aukin gæði starfsþjálfunar með aðstoð evrópska einingakerfisins í starfsmenntun |
Tilnefningar á háskólastigi:
Listaháskóli Íslands | Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf |
Háskóli Íslands | Stúdenta- og starfsmannaskipti |
Listaháskóli Íslands | Stúdenta- og starfsmannaskipti |
Tilnefningar í fullorðinsfræðslu:
EVRIS | Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið |
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins | Ráðgjöf í atvinnulífinu |
Slysavarnafélagið Landsbjörg | Þjálfun áhafna björgunarbáta |
Tilnefningar í eTwinning - rafrænu skólasamstarfi:
Leikskólinn Holt, Reykjanesbæ | Gegnum lýðræði til læsis |
Verzlunarskóli Íslands | Yfirlit yfir blaðaumfjöllun 2016 |