Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar, Félag náms- og starfsráðgjafa, Norræna tengslanetið um menntun fullorðinna og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins héldu ráðstefnu með yfirskriftinni Færni til framtíðar - mótun starfsferils föstudaginn 30. nóvember og var hún hluti af árlegum degi náms- og starfsráðgjafar.
Gífurlegur áhugi var á ráðstefnunni og við lá að þátttakendur sprengdu utan af sér ráðstefnusalinn á Grand hóteli. Tæplega 200 manns mættu og gerðu góðan róm að bæði erindum og pallborði.
Illugi Gunnarsson ávarpaði samkomuna og ræddi meðal annars um hið mikilvæga hlutverk sem náms- og starfsráðgjafar gegna við að aðstoða fólk sem stendur á krossgötum hvað varðar val á námi eða starfi.
Bo Klindt Poulsen ( krækja á glærur ) flutti fyrirlestur um norræna túlkun á hugtakinu Career Management skills og Guðrún Birna Kjartansdóttir ( krækja á glærur ) fjallaði um þá vinnu sem fram hefur farið í stefnumótun um náms- og starfsráðgjöf. Skýrslu byggða á þeirri vinnu má finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Að lokum var svo pallborð ( krækja á glærur ) þar sem þátttakendur deildu reynslu sinni af náms- og starfsfræðslu á öllum skólastigum og úti í atvinnulífinu.
Ráðstefnustjóri var María Kristín Gylfadóttir, stjórnandi Erasmus+ áætlunarinnar.
Evrópumiðstöðin þakkar öllum sem tóku þátt í ráðstefnunni og stóðu að skipulagningu hennar innilega fyrir.