Nýtt fréttabréf Euroguidance samstarfsnetsins: Nám og starf í öðru landi
24.11.2015
Nýtt
fréttabréf Euroguidance samstarfsnetsins er komið á vefinn. Í þetta sinn eru allar greinar fréttabréfsins tengdar námi og starfi í öðru landi.
Í fréttabréfinu eru greinar um rannsóknir á þessu flókna viðfangsefni, m.a. viðtöl og stutt frétt um samantekt Eurydice netsins á áhrifum skólagjalda og og námsstyrkja á það hverjir fara í nám erlendis.
Efnisyfirlit:
- Viðtal við Åsa Karlsson Perez náms- og starfsráðgjafa um hvernig væntingar ungs fólks til utanlandsdvalar rætast
- Viðtal við Søren Kristensen um hversu auðvelt er að gleymt þeim sem standa höllum fæti þegar kemur að því að styðja fólk til náms og starfs á erlendri grund
- Grein um það sem fólk lærir á dvöl erlendis en er oft hulið sjónum t.d. atvinnurekenda
- Grein um finnska náms- og starfsráðgjafa sem til margra Evrópulanda í námsheimsóknir
- Grein um nýjan vef á nokkrum tungumálum fyrir innflytjendur um það hvert þeir eiga að snúa sér með ýmis mál
- Frásögn af samvinnu nokkurra landa í mið-Evrópu
- Hvernig er að vinna fyrir stofnanir ESB? Mika Launikari segir frá doktorsverkefni sínu
- Frásögn af námsheimsókn Króata til Bretlands
- Eurydicie úttekt á skólagjöldum og námsstyrkjum