Tengslaráðstefna fyrir skóla og stofnanir sem eru með aðild í Erasmus+. Haldin í Helsinborg, Svíþjóð 25.-28. apríl 2023

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2023

 

Heiti viðburðar: Creating Contacts for Accredited Organisations 3.0

Fyrir: Starfsfólk, kennara og stjórnendur skóla og stofnana sem eru með aðild í skólahluta, starfsmenntahluta eða fullorðinsfræðsluhluta Erasmus+.

Tungumál: Enska

Hvar: Helsinborg, Svíþjóð

Hvenær: 25.-28. apríl 2023

Umsóknarfrestur: Til og með 8. mars 2023

Sótt er um á heimasíðu Salto

Á þessari tengslaráðstefnu koma saman um 80 þátttakendur frá 25 löndum sem eiga það sameiginlegt að vera með aðild í skólahluta, starfsmenntahluta eða fullorðinsfræðsluhluta Erasmus+. Þátttakendur fá tækifæri til þess að víkka tengslanet sitt, deila reynslusögum, læra af öðrum, ræða hindranir sem þeir hafa þurft að takast á við í verkefnum og mögulegar lausnir.

Nánar um þema og marmið á heimasíðu Salto.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2

Landsskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Sólveig Sigurðardóttir: solveig@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica