Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2023
Heiti viðburðar: Sport and Sustainability – a Lifelong Approach
Fyrir: Skólastarfsfólki á íþróttabrautum býðst að taka þátt í ráðstefnu á Finnlandi um tengsl íþrótta og sjálfbærni. Ráðstefnan er hugsuð fyrir kennara, sérfræðinga og skólastarfsfólk sem starfa við íþróttabrautir skóla.
Tungumál: Enska
Hvar: Lahti, Finnlandi
Hvenær: 29.-31. maí 2023
Umsóknarfrestur: Til og með 24. mars 2023
Á þessari vinnustofu koma saman um 50 þátttakendur frá 19 löndum. Þátttakendur fá tækifæri til þess að deila reynslusögum, auka þekkingu sína á sjálfbærni á sviði íþrótta, efla tengslanet sitt og sækja innblástur að Erasmus+ verkefnum. Sjá nánar um þema og markmið á heimasíðu Salto
Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2
Landsskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.
Fyrirspurnum svarar Sólveig Sigurðardóttir: solveig@rannis.is