Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2023
Heiti viðburðar: Partnerships for Cooperation– how to plan an excellent project for pre-schools in the area of green practices
Fyrir: Starfsfólk og stjórnendur leikskóla sem hafa áhuga á að taka þátt í Erasmus+ samstarfsverkefni
Tungumál: Enska
Hvar: Varsjá, Póllandi
Hvenær: 26.-30. apríl 2023
Umsóknarfrestur: Til og með 20. mars 2023
Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 2
Nánar um þema og markmið á heimasíðu Salto
Landsskrifstofa Erasmu+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.
Fyrirspurnum svarar Sólveig Sigurðardóttir: solveig@rannis.is