Á döfinni
Erasmus+ tengslaráðstefna fyrir kennara og stjórnendur á sviði starfsmenntunar á Möltu
Meginmarkmið ráðstefnunnar er að mynda tengsl og þróa verkefnahugmyndir á sviði endurmenntunar starfsmenntakennara og nýrrar tækni við kennslu í starfsmenntun.
Markhópar ráðstefnunnar eru stjórnendur og kennarar á sviði starfsmenntunar.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um nafn, stofnun, og stöðu innan skóla /stofnunar. Einnig upplýsingar um reynslu umsækjanda og verkefnishugmynd. Við úthlutun styrkja er meginreglan að ekki fari nema einn frá hverjum skóla, fyrirtæki eða stofnun.
Landskrifstofa Erasmus+ veitir styrk fyrir ferðakostnaði og þátttökugjaldi ráðstefnu. Þátttökugjald, gisting og uppihald meðan á ráðstefnunni stendur er greitt beint af Landskrifstofu.
Umsóknarfrestur er 22. september næstkomandi